Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 11. 2014 | 12:00

Carin Koch verður fyrirliði Solheim Cup liðs Evrópu 2015

Tilkynnt var um að í dag að hin sænska Carin Koch hafi verið útnefnd fyrirliði evrópska Solheim Cup liðsins, sem reyna mun að ná 3. sigrinum í röð gegn liði Bandaríkjanna í viðureign liðanna í  Golf Club St. Leon-Rot í Þýskalandi.

Koch mun reyna að halda Solheim bikarnum í Evrópu en síðast vann liðið 18-10 gegn bandaríska liðinu í  Colorado Golf Club árið 2013, þegar evrópska liðið vann sögulegan sigur, en þetta var fyrsti sigurinn á bandarískri grund.

Lið Evrópu hefir nú sigrað í tveimur mótum í röð en fyrri sigurinn kom 2011 í Killeen Castle á Írlandi.

Mótið á næsta ári fer fram 18.-20. september.

„Ég er gríðarlega ánægð og mér þykir mikill heiður að vera fyrirliði Solheim Cup liðsins 2015,“ sagði Koch. „Þegar ég var varafyrirliði Lottu (Neumann) árið 2013 þá upplifði ég enn einu sinni spenningin sem fylgir Solheim Cup leikjnum, sem eru ólík öllum öðrum atvinnumannamótum í golfi. Ég get ekki beðið að standa með liðinu á fyrsta teig næsta september og reyna við þriðja sigurinn gegn bandaríska liðinu. Ég hlakka til að starfa með þeim í  Golf Club St.Leon-Rot á næsta koma á laggirnar bestu Solheim Cup mótinu sem nokkru sinni hefir verið haldið.“