Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 4. 2019 | 07:00

Champions Tour: Stricker sigraði á US Senior Open

Steve Stricker sigraði á US Senior Open, risamóti á öldungamótaröð PGA Tour.

Sigur hans var sannfærandi því hann átti 6 högg á þá sem næstir komu.

Sigurskor Stricker var 19 undir pari, 261 högg (62 64 66 69).

Þetta er 2. risatitill Stricker á öldungamótaröðinni.

Í 2. sæti höfnuðu þeir David Toms og Jerry Kelly, báðir á samtals 13 undir pari, hvor.

US Senior Open fór fram dagana 27.-30. júní sl. í Notre Dame, Indiana.

Sjá má lokastöðuna á US Senior Open með því að SMELLA HÉR: