Er Adam Scott heitasti íþróttamaðurinn?
Þegar maður leitar á internetinu að áhugaverðu lesefni fyrir lesendur Golf 1 verður ekki hjá því komist að rekast á fjölbreytilegt efni.
Ein greinin sem fannst er á vefsíðu Bro Jackson og höfðar e.t.v. meira til kvenlesenda Golf 1 …. og e.t.v. einhverra karlmanna líka.
Fréttamaður Bro Jackson gerði smá könnun þ.e. hvort Adam Scott , sem ítrekað er valinn kynþokkafyllsti kylfingurinn sé jafnframt líka „heitasti“ íþróttamaðurinn?
Hún ákvað að gera samanburð á Adam Scott og 10 karlkyns íþróttamönnum sem sátu naktir fyrir í síðasta tölublaði ESPN Body Issue.
Matið byggist ekki á hreinu útliti heldur fer fréttamaður eftir. hvernig viðkomandi íþróttamaður skorar í félagsmiðlum s.s. Twitter, hvernig ímynd viðkomandi sé á Google, hvernig viðkomandi komi út á Wikipedia og YouTube og það sem gerir viðkomandi íþróttamann m.a. „heitan“ í augum þessa kvenfréttamanns þ.e. hversu mikið hann á af peningum og hvaða afrek hann hafi unnið á íþróttasviðinu.
Skemmst er frá því að segja að Adam er ekki efstur í neinum af framangreindum flokkum …. og það sem er athyglivert er að golfgoðsögnin Gary Player er annar af tveimur sem kemst í úrslit en sigurvegari þessarar óformlegu könnunar yfir hver sé heitastur er „Manimal“ þ.e. körfuboltamaðurinn Kenneth Farried, sem spilar fyrir Denver Nuggets.
Dæmið sjálf (en greininni fylgja skemmtilegar myndir og myndskeið) með því að SMELLA HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024