Ernie Els vonsvikinn og reiður fyrir að hafa misst af tækifæri til sigurs á Transitions mótinu
Ernie Els er vonsvikinn og reiður eftir að hafa eyðilagt frábæran möguleika á að binda endi á sigurleysi sitt á Transitions Championship s.l. helgi, en finnst að hann geti enn hlotið þátttökurétt á U.S. Masters í næsta mánuði.
Fyrrum nr. 1 á heimslistanum frá Suður-Afríku fékk skolla á síðustu 2 holurnar í Flórída og var aðeins 1 höggi frá því að vera með í 4 manna umspili sem Luke Donald vann síðan.
„Ég hef sagt það í gegnum feril minn að í hvert sinn sem ég tía upp spila ég til þess að sigra þannig að í hvert sinn sem ég fæ tækifæri til þess og tekst ekki ætlunarverkið þá er ég augljóslega vonsvikinn og reiður sjálfum mér,“ sagði hann á vefsíðu sinni, Sjá HÉR:
„Þetta voru tilfinningar mínar sunnudagskvöldið. Það er enn sárt hvernig ég lauk mótinu en ég veit í hjarta mér hversu vel ég spilaði alla vikuna.“
Ernie Els hefir ekki sigrað síðan í 4 manna PGA Grand Slam í golfinu 2010 og hefir dottið niður í 62. sæti heimslistans og þarf að komast upp í 50. sæti fyrir The Masters, sem hefst 5.-8. apríl n.k.
Hinn 42 ára Ernie hefir ekki misst af opnunarmóti risamóts allra risamóti síðan 1993 (eða í 19 ár). Hann á enn eftir að vinna græna jakkann, en náði að komast næst því 200o og 2004.
„Ef þú hefðir boðið mér upp á skorið 70, 67, 68 og 67 og -12 undir pari þá myndi mér hafa líkað það,“ sagði Ernie.
„En ég missti púttið á 18. braut og …. það skilur eftir sig slæma tilfinningu. Þetta er erfitt en maður verður að líta yfir farinn veg og sjá það jákvæða.“
„Þetta var einn besti árangur minn á PGA Tour frá árinu 2010. Ég var að dræva vel, var inni á flötum á tilskyldum höggafjölda alla vikuna og fuglaskorið var gott.“
Ernie veit að hann þarfnast góðrar frammistöðu á Arnold Palmer Invitational í Flórida og á the Houston Open strax þar á eftir til þess að komast á Masters.
„Ef ég á að tryggja þátttökuréttinn verð ég líklega að vinna eða komast mjög nálægt því í einu af næstum tveimur mótum mínum,“ sagði hann.
„Það góða er að ég fer í mótin vitandi að spil mitt er gott og á þeim stað sem það ætti að vera til að vera samkeppnishæfur og vera meðal þeirra efstu og næsta sinnið vona ég að ég geti landað sigri.“
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024