Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 28. 2019 | 20:00

Evían 2019: Ko sigraði!

Það var Jin Young Ko frá S-Kóreu, sem stóð uppi sem sigurvegari á Evían risamótinu 2019.

Sigurskorið var 15 undir pari, 269 högg (65 71 66 67).

Í 2. sæti var Jennifer Kupcho frá Bandaríkjunum ásamt þeim Shanshan Feng frá Kína og Hyo Joo Kim frá S-Kóreu, en þær voru allar á samtals 13 undir pari, hver.

Ein í 5. sæti  var síðan Ariya Jutanugarn frá Thaílandi á samtals 11 undir pari.

Sjá má lokastöðuna á Evían risamótinu að öðru leyti með því að SMELLA HÉR: 

Sjá má hápunkta lokahringsins á Evían risamótinu með því að SMELLA HÉR: