Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 12. 2012 | 06:30

Evróputúrinn: Lee Westwood efstur í Dubai eftir 3. dag

Það er kunnara en frá þurfi að segja að Lee Westwood er seinn að koma sér af stað eftir keppnishlé en þegar hann er kominn í gang…. þá fær fátt stöðvað hann. Nú er Lee kominn í efsta sætið á Dubai Desert Classic eftir 3. dag mótsins. Hann er búinn að spila á -15 undir pari, samtals 201 höggi (69 65 67).

Ánægður Westwood sagði m.a eftir hringinn: „Ég spilað vel aftur. Mjög sólíd. Ég byrjaði vel var kominn í -3 undir (par) eftir fyrstu 4 holurnar og svo rúllaði boltinn vel á flötunum og ég var að slá vel með járnunum.“

Í 2. sæti eru 3 kylfingar: Þjóðverjinn Marcel Siem, Rafael Cabrera-Bello frá Gran Kanarí og Skotinn Stephen Gallacher. Allir eru þeir á samtals -14 undir pari.

Rory McIlroy og Martin Kaymer deila 5. sætinu með 2 öðrum kylfingum á -13 undir pari. T-9 eru svo Daninn Thomas Björn, George Coetzee frá Suður-Afríku og Bandaríkjamaðurinn Ben Curtis á -12 undir pari.

Belginn Nicholas Colsaerts, sem hefir blandað sér í toppbaráttuna í öllum mótum Evrópumótaraðarinnar það sem af er, er síðan í 12. sæti á samtals -11 undir pari og munar því aðeins 4 höggum á honum og Lee og ljóst að stefnir í hörkubaráttu seinna í dag!

Til þess að sjá stöðuna á Dubai Desert Classic eftir 3. dag smellið HÉR: