Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 7. 2019 | 18:30

Evróputúrinn: Arnaus og Walters efstir í Qatar e. 1. dag

Það eru Spánverjinn Adri Arnaus og Justin Walters frá S-Afríku sem eru efstir og jafnir eftir 1. dag á Commercial Bank Qatar Masters, sem er mót vikunnar á Evróputúrnum.

Mótið stendur 7.-10. mars 2019 og fer fram í Doha GC í Doha, Qatar.

Arnaus og Walters léku báðir á 5 undir pari, 67 höggum.

Á hæla þeirra er hópur 7 kylfinga þ.á.m. Ryder Cup kylfingurinn fv. Nicholas Colsaerts frá Belgíu, sem allir spiluðu 1. hring á 4 undir pari, 68 höggum.

Til þess að sjá stöðuna á Qatar Masters að öðru leyti SMELLIÐ HÉR: 

Til þess að sjá hápunkta 1. dags á Qatar Masters SMELLIÐ HÉR: 

Í aðalmyndaglugga: Adri Arnaus