Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 19. 2021 | 18:00

Evróputúrinn: Catlin sigraði í Austurríki

Bandaríski kylfingurinn John Catlin sigraði á Austrian Golf Open sem fram fór dagana 15.-18. apríl 2021 og var mót vikunnar á Evróputúrnum.

Kept var í Diamond CC í Atzenbrugg, nálægt Vín í Austurríki.

Catlin var jafn Þjóðverjanum Maximilian Kieffer eftir hefðbundnar 72 holur (báðir á 14 undir pari) og varð því að koma til bráðabana milli þeirra.

Það hafði Catlin betur á 5. holu bráðabanans.

Sjá má lokastöðuna á Austrian Golf Open með því að SMELLA HÉR: