Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 17. 2019 | 11:00

Evróputúrinn: Fox sigraði á ISPS Handa World Super 6 Perth

Það var heimamaðurinn Ryan Fox sem sigraði á ISPS Handa World Super 6 Perth, móti vikunnar á Evróputúrnum í samstarfi við Ástralasíutúrinn.

Ryan Fox hafði betur í viðureign sinni við spænska kylfinginn Adrián Otagui og fóru leikar 3&2.

Þetta er fyrsti sigur Fox á Evróputúrnum.

Írinn Paul Dunne tók 3. sætið eftir að hafa haft betur gegn Scott Vincent frá Zimbabwe á 6. holu.

Sjá má lokastöðuna á ISPS Handa World Super 6 Perth með því að SMELLA HÉR: