Ragnheiður Jónsdóttir | október. 12. 2020 | 10:00

Evróputúrinn: Hatton sigraði á BMW PGA meistaramótinu

Það var enski kylfingurinn Tyrrell Hatton, sem sigraði á BMW PGA Championship, sem venju skv. fór fram á Wentworth, nú dagana 8.-11. október 2020.

Sigurskor Hatton var 19 undir pari, 269 högg (66 67 69 67).

Sigurinn var öruggur því Hatton átti 4 högg á franska kylfinginn Victor Perez, sem hafnaði í 2. sæti.

Í þriðja sæti voru síðan Patrick Reed og Andy Sullivan báðir á samtals 14 undir pari, hvor.

Sjá má lokastöðuna á BMW PGA Championship með því að SMELLA HÉR: