Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 10. 2019 | 15:00

Evróputúrinn: Justin Harding sigraði á Qatar Masters

Það var Justin Harding frá S-Afríku sem sigraði á Commercial Bank Qatar Masters, sem var mót vikunnar á Evróputúrnum og fór fram í Doha GC, í Doha, Qatar, dagana 7.-10. mars og lauk í dag.

Þetta er fyrsti sigur Harding á Evróputúrnum.

Sigurskor Harding var 13 undir pari, 275 högg (68 68 73 66).

Í 2. sæti urðu hvorki fleiri né færri en 9 kylfingar, allir á 11 undir pari, 2 höggum á eftir Harding, þ.á.m. Christiaan Bezuidenhout, Erik Van Rooyen og George Coetzee, landar Harding. S-Afríkumenn sigursælir!!!

Sjá má lokastöðuna á Qatar Masters með því að SMELLA HÉR: 

Sjá má hápunkta 4. dags á Qatar Masters með því að SMELLA HÉR: