Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 5. 2019 | 16:30

Evróputúrinn: Korhonen sigraði á Volvo China Open

Það var Finninn Mikko Korhonen sem stóð uppi sem sigurvegari á Volvo China Open.

Korhonen og franski kylfingurinn Benjamin Herbert voru efstir og jafnir eftir hefðbundnar 72 holu leik, báðir búnir að spila á samtals 20 undir pari, 268 höggum og varð því að koma til bráðabana milli þeirra.

Þar hafði Korhonen betur með fugli þegar á 1. holu bráðabanans.

Spænski kylfingurinn Jorge Campillo varð síðan í 3. sæti, 1 höggi á eftir þeim Korhonen og Herbert.

Sjá má lokastöðuna á Volvo China Open með því að SMELLA HÉR:

Sjá má hápunkta lokahrings Volvo China Open með því að SMELLA HÉR: