Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 5. 2019 | 21:00

Evróputúrinn: Lombard efstur í hálfleik Opna írska

Mót vikunnar á Evróputúrnum er Dubai Duty Free Irish Open (eða Opna írska upp á íslensku), sem fram fer í Lahinch í County Clare á Írlandi, dagana 4.-7. júlí 2019.

Þegar mótið er hálfnað er suður-afríski kylfingurinn Zander Lombard efstur; búinn að spila á  9 undir pari, 131 höggi (64 67).

Í 2. sæti er enski kylfingurinn Eddie Pepperell aðeins 1 höggi á eftir Lombard á samtals 8 undir pari, 132 höggum (65 67) og þriðja sætinu deila 3 kylfingar, sem allir eru enn einu höggi á eftir forystumanninum þ.e. allir á 7 undir pari, en það eru Lee Westwood, Jorge Campillo og mexíkanski kylfingurinn Abraham Ancer.

Til þess að sjá stöðuna á Opna írska SMELLIÐ HÉR: 

Til þess að sjá hápunkta 2. dags á Opna írska SMELLIÐ HÉR: