Ragnheiður Jónsdóttir | september. 7. 2019 | 22:00

Evróputúrinn: MacIntyre og Ritthammer leiða f. lokahringinn

Það eru heimamaðurinn Bernd Ritthammer og skoski kylfingurinn Robert MacIntyre sem eru í forystu á Porsche European Open mótinu, móti vikunnar á Evróputúrnum í Hamborg.

Báðir eru þeir búnir að spila á 9 undir pari, 207 höggum; Ritthammer (71 66 70) og MacIntyre (68 65 74).

Einn í 3. sæti aðeins 1 höggi á eftir forystumönnunum á samtals 8 undir pari, 208 höggum (66 73 69) – er Paul Casey.

Til þess að sjá hápunkta 3. dags á Porsche European Open SMELLIÐ HÉR: 

Til þess að sjá stöðuna á Porsche European Open SMELLIÐ HÉR: