Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 6. 2019 | 23:00

Evróputúrinn: Rock leiðir á Lahinch!

Það var enski kylfingurinn Robert Rock, sem skrifaði sig í golfsögubækurnar í dag.

Hann tók forystuna í Dubai Duty Free Irish Open (Opna írska) á ótrúlega flottu skori á 3. hring 10 undir pari, 60 höggum, sem jafnar lægsta skor í sögu mótsins, en sama skor átti fyrir Brandon Stone.

Jafnframt er þetta lægsta skor á ferli Rock á Evróputúrnum og bætti hann fyrra lægsta skor sitt um 3 högg!

Samtals er Rock því búinn að spila á 13 undir pari, er í efsta sæti fyrir lokahringinn og á 1 högg á þá Rafa Cabrera Bello frá Spáni og enska kylfinginn Eddie Pepperell.

Sjá má stöðuna að öðru leyti á Opna írska með því að SMELLA HÉR: