Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 24. 2019 | 09:15

Evróputúrinn: Scott Hend sigraði á Maybank Championship e. bráðabana við Nacho Elvira

Það var ástralski kylfingurinn Scott Hend, sem stóð uppi sem sigurvegari eftir bráðabana við spænska kylfinginn Nacho Elvira á móti vikunnar á Evróputúrnum, Maybank Championship.

Mótið fór fram í Saujana, G&CC, í Kuala Lumpur, Malasíu dagana 21.-24. mars 2019 og lauk nú rétt í þessu.

Þeir Hend og Elvira voru efstir og jafnir eftir hefðbundnar 72 holur og því varð að koma til bráðabana milli þeirra.

Báðir spiluðu Hend og Elvira á 15 undir pari, 273 höggum; Hend (69 70 67 67) og Elvira (65 72 66 70).

Í bráðabananum vann Scott Hend með fugli á 1. holu bráðabanans meðan Elvira tapaði á parinu.

Sjá má lokastöðuna á Maybank Championship með því að SMELLA HÉR: