Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 27. 2019 | 20:00

Evróputúrinn: Sergio Garcia fast á hæla Perez e. 1. dag Andalucia Masters

Það er franski kylfingurinn Victor Perez, sem er efstur á móti vikunnar á Evróputúrnum eftir 1. dag þ.e. Estrella Damm N.A. Andalucia Masters hosted by the Sergio Garcia Foundation.

Victor Perez

Mótið fer fram í Real Club de Valderrama, dagana 27.-30. júní 2019.

Perez kom í hús á 6 undir pari, 65 höggum. Fast á hæla hans eru 5 kylfingar, sem eru 1 höggi á eftir þ.e. á 5 undir pari, 66 höggum en það eru gestgjafinn sjálfur Sergio Garcia; Christian Bezuidenhout frá S-Afríku, Anton Karlsson frá Svíþjóð, bandaríski kylfingurinn Sihwan Kim og Gavin Green frá Malasíu.

Til þess að sjá stöðuna á Andalucia Masters SMELLIÐ HÉR:

Til þess að sjá hápunkta 1. dags á Andalucia Masters SMELLIÐ HÉR: