Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 29. 2019 | 13:00

Evróputúrinn: Suri efstur í hálfleik Hero Indian Open

Það er bandaríski kylfingurinn Julian Suri sem er efstur á móti vikunnar á Evróputúrnum, Hero Indian Open, sem fram fer á DLF G&CC í Nýju-Dehli, Indlandi, dagana 28.-31. mars 2019. Völlurinn, sem er afar glæsilegur er hannaður af Gary Player.

Suri hefir spilað á samtals 10 undir pari, 134 höggum (67 67).

Sjá má stöðuna á Hero Indian Open með því að SMELLA HÉR: 

Sjá má hápunkta 2. dags á Hero Indian Open með því að SMELLA HÉR: