Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 3. 2021 | 18:00

Evróputúrinn: Wiesberger sigraði í Danmörku

Það var Austurríkismaðurinn Bernd Wiesberger sem stóð uppi sem sigurvegari á móti vikunnar á Evróputúrnum, Made in HimmerLand presented by FREJA.

Mótið fór fram dagana 27.-30. maí sl. í HimmerLand, Farsø, Danmörku.

Sigurskor Wiesberger var 21 undir pari, 263 högg (66 65 68 64).

Í 2. sæti varð Ítalinn Guido Migliozzi, heilum 5 höggum á eftir Wiesberger.

Sjá má lokastöðuna á Made in HimmerLand með því að SMELLA HÉR: