Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 23. 2014 | 07:00

FedEx Cup: Adam Scott og Cameron Tringale efstir á Barclays – Hápunktar 2. dags

Það eru þeir Adam Scott og Cameron Tringale sem leiða eftir 2. dag the Barclays.

Báðir eru búnir að spila á samtals 8 undir pari, 134 höggum; Scott (69 65) og Tringale (66 68).

Þrír kylfingar deila 3. sætinu einu höggi á eftir: Jim Furyk, Kevin Chappell og Brendon Todd.

Rory McIlroy komst í gegnum niðurskurð eftir frábæran hring upp á 65 högg en 9 högga sveifla var milli hringja hjá honum.

Margir góðir komust ekki í gegnum niðurskurð t.a.m. Ian Poulter, Luke Donald, Jonas Blixt og Jimmy Walker.

Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag á the Barclays SMELLIÐ HÉR: 

Til að sjá hápunkta 2. dags á the Barclays SMELLIÐ HÉR: