Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 5. 2012 | 14:00

Feðgar – þeir Gunnar Þór Halldórsson og Baldur Mikael Gunnarsson fóru holu í höggi!!!

Sá skemmtilegi atburður átti sér stað að feðgarnir Gunnar Þór Halldórsson, GK og Baldur Mikael Gunnarsson, GK fóru holu í höggi sitthvorn daginn eða dagana 25. og 26 júlí.

Baldur Mikael sem er 13 ára gamall var við leik á Flúðarvelli og fór holu í höggi eftir að hafa slegið með 9 járni á 9. braut vallarins.

Var mikill fögnuður á heimilinu, enn eitthvað hefur þetta ýtt við húsbóndanum Gunnar Þór sem gerði það sama daginn eftir er hann lék Húsatóftarvöll í Grindavík. Þar á 7. holu notaðist hann við 52 gráðu fleygjárn og setti beint í holu.

Golf 1 óskar þeim feðgum Gunnari Þór og Baldri Mikael til innilega hamingju með draumahöggið!

Heimild: keilir.is