Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 24. 2021 | 18:00

GA: Allar flatir Jaðarsvallar lausar við snjó

Allar flatir á Jaðarsvelli á Akureyri eru lausar við snjó og klaka. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu Golfklúbbs Akureyrar en Íslandsmótið í golfi 2021 fer fram á Jaðarsvelli dagana 5.-8. ágúst.

Hitastigið hefur verið hátt undanfarna daga á Akureyri þar sem að hlýir sunnan vindar hafa ráðið ríkjum. Sólin skein skært samhliða þessum miklu hlýindum. Starfsmenn GA hafa unnið hörðum höndum í vetur að létta á snjó og tryggja það að snjór og klaki fari af flötunum eins fljótt og mögulegt er. Í byrjun ársins 2021 snjóaði mikið á Akureyri og er veturinn fram til þessa einn sá allra snjóþyngsti í mörg ár.

Í aðalmyndaglugga er mynd af flöt á Jaðarsvelli, sem tekin var 19. mars sl. og má sjá að hún er snjólaus.