Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 10. 2021 | 12:00

GA: Magnús Birgisson ráðinn í stöðu þjálfara

Magnús Birgisson hefur verið ráðinn í starf þjálfara hjá GA í sumar, þar sem hann mun starfa með þeim Heiðari og Stefaníu. (Mynd af þeim þremur er í aðalmyndaglugga).

Magnús, sem er einn besti golfkennari Íslands bjó á Akureyri í 10 ár og varð m.a. klúbbmeistari GA árið 1983.

Móðir Magnúsar er Inga Magnúsdóttir, sem varð klúbbmeistari kvenna hjá GA 10 ár í röð frá 1979-1988.

GA horfir með tilkomu Magnúsar á að auka þjónustu á öllum sviðum þjálfunar, þar sem m.a. verður lögð enn meiri áhersla á metnaðarfullt barna- og unglingastarf og að bjóða félögum GA á öllum getustigum upp á aukið framboð af námskeiðum.

Magnús starfar hjá GA frá 1. júní -1. september nú í ár.