Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 16. 2015 | 21:00

GB: Arnór Tumi og Pétur Sverris sigruðu á Vormóti GB Opið 2015

Golfklúbbur Borgarness hefur aldrei haldið „opið“ golfmót svo snemma sumar.

Þrátt fyrir kuldabolann undanfarnar vikur hefur okkur tekist gera völlinn það verulega leikhæfan að það virtist ánægja á hverri brá hjá keppendum í Opna Vormóti GB í dag (nema sumir með skorið).

Og aðsókn góð þrátt fyrir lokun Hvalfjarðarganga, en alls voru þátttakendur 34, þar af 9 kvenkylfingar, sem er gott hlutafall kvenkylfinga í móti.

Heimamenn fóru næstum hamförum í græðgi til verðlauna eins og heimaríkir hundar.

Besta skor: Arnór Tumi Finnsson GB, 5 yfir pari, 76 högg.

Punktakeppni (verðlaun veitt fyrir efstu 3 sæti):

1. sæti Pétur Sverrisson GB fgj. 11  f. 21 s. 17  samtals: 38 punktar
2. sæti  Arnór Tumi Finnsson GB fgj. 6 f. 20 s. 17  samtals: 37 punktar
3. sæti  Arnar Smári Bjarnason GB fgj. 24 f. 19 s.17  samtals: 36 punktar

Og síðan var dágóður slatti nándarverðlauna.  Eftirfarandi tóku nándarverðlaun:

2 braut. Einar Þór GB 3,38m
8. braut. Hilmar Hákonarson GB 2,50m
10. braut. Arnar Smári GB 2,00m
14. braut. Jón Hilmar GM 1.85m
Á 16. braut hirti Arnór Tumi heiðurinn af Arnari Smára í lokaholli með 3 sentimetrum eða 2,48m.