Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 23. 2024 | 17:50

GE: Halldóra Guðríður og Magnús klúbbmeistarar 2024

Golfklúbburinn Esja (GE) var sá fyrsti til að halda meistaramót sitt í ár og er meistaramótið eina mótið á mótaskrá GE.

Það fór fram í Brautarholtinu dagana 13.-15. júní sl. og var spilaðar 12 holu höggleikur, nema í 1. flokki kvenna þar var 12 holu punktakeppni.

Þátttakendur í ár voru 26 og var keppt í 4 flokkum.

Klúbbmeistarar GE eru þau Halldóra Guðríður Gunnarsdóttir og Magnús Lárusson.

Magnús hefir á m.a. áður orðið klúbbmeistari Golfklúbbsins Jökuls í Ólafsvík (GJÓ) árið 2015 og klúbbmeistari GE, árið 2020. Árin 2021 og 2022 voru ekki haldin meistaramót hjá GE. En þetta er 2. árið í röð sem Halldóra Guðríður verður klúbbmeistari kvenna í GE, en í fyrra urðu hún og maður hennar klúbbmeistarar.

Guðjón Karl og Halldóra Guðríður klúbbmeistarar Golfklúbbsins Esju 2023

Sjá má öll úrslit í meistaramóti GE 2024 í Golfboxinu með því að SMELLA HÉR:  og þau helstu hér að neðan:

Meistaraflokkur karla:
1 Magnús Lárusson 144 högg (50 45 49)
2 Árni Páll Hansson 150 högg (55 47 48)
3 Birgir Guðjónsson 150 högg (52 50 48)

Meistaraflokkur kvenna:
1 Halldóra Guðríður Gunnarsdóttir 184 högg (70 57 57)
2 Ellen Rut Gunnarsdóttir 187 högg (73 58 56)
3 Kolbrún Arnardóttir 198 högg (70 65 63)

1 flokkur karla:
1 Ríkharður Daðason 154 högg (54 51 49)
2 Ómar Guðnason 156 högg (50 56 50)
3 Haukur Sörli Sigurvinsson 168 högg (59 53 56)

1 flokkur kvenna:
1 Brynja Þórhallsdóttir 59 punktar (20 19 20)
2 Berglind Þóra Hallgeirsdóttir 53 punktar (12 13 28)
3 Edda Hermannsdóttir 53 punktar (14 19 20)

Í aðalmyndaglugga: Magnús Lárusson, GE. Mynd: Golf 1