Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 23. 2021 | 10:00

„Geggjuð tilfinning“ – Gunnhildur Hekla fór holu í höggi

Gunnhildur Hekla Gunnarsdóttir, GKG, fór holu í höggi á 1. keppnisdegi á nýafstöðnu Íslandsmóti unglinga í höggleik, þ.e. þann 19. ágúst sl.

Ásinn kom á par-3 7. holu Hlíðavallar í Mosfellsbæ.

Brautin er 109 m af gulum teigum (keppnisteigum kvenna).

Gunnhildur notaði pitching wedginn sinn við höggið góða.

Í viðtali við fréttamann GSÍ eftir hringinn sagði Gunnhildur að þetta hefði verið 1. ásinn hennar og  tilfinningin að fá hann „hafi verið geggjuð“

Golf 1 óskar Gunnhildi innilega til hamingju með ásinn og inngönguna í Einherjaklúbbinn!!!

Aðalmyndagluggi: Gunnhildur Hekla. Mynd: GSÍ