Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 29. 2014 | 22:00

Gerina Piller 29 ára

Golf 1 gleymdi að telja bandarísku Solheim Cup stjörnuna Gerinu Piller meðal afmæliskylfinga dagsins en hér verður bætt úr.

Gerina á afmæli 29. mars 1985 og er því 29 ára í dag.

Hún er fædd í Roswell, Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum.

Gerina er gift Martin Piller, sem lék á Web.com túrnum og er oft kaddý hjá henni.

Gerina útskrifaðist frá University of Texas í El Paso, en hún spilaði öll 4 ár sín þar með golfliði skólans og vann 4 sinnum í einstaklingskeppni þar.

Gerina gerðist atvinnukylfingur 2007, en fyrstu 3 árin spilaði hún á Futures Tour. Á LPGA komst hún ekki fyrr en 2010 en hefir enn sem komið er ekki náð 1 sigri, þó hún hafi oft verið ofarlega á skortöflunni. Besti árangur hennar í  risamótum kvennagolfsins er T-6 árangur í LPGA Championship.