Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 1. 2016 | 20:00

GHR: Einar Long á besta skorinu á 1. maí móti GHR og Grillbúðarinnar!

Í dag fór fram 1. maí mót GHR og Grillbúðarinnar.

Í morgun voru 146 skráðir til leiks en 125 luku honum síðan, þar af 8 kvenkylfingar.  Að venju var um að ræða höggleikskeppni með og án forgjöf, sem ekki er svo algeng hér á landi, en hér í eftirfarandi frétt verður einnig greint frá þeim sem stóðu sig best hefði mótið verið punktamót..

Best af konunum stóðu sig Hafdís Alda Jóhannsdóttir, GK, klúbbmeistari kvenna í GHR í mörg ár, en hún lék Strandavöll á 86 höggum.

Hafdís Alda Jóhannsdóttir, GK, Mynd: Golf 1

Hafdís Alda Jóhannsdóttir, GK, Mynd: Golf 1

Best í punktakeppninni af kvenkylfingunum stóð sig Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, GR, var með 31 punkt.

Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, GR. Mynd: Golf 1

Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, GR. Mynd: Golf 1

Á besta skori var mótshaldarinn sjálfur Einar Long, en hann lék á 70 höggum.

Úrslit í höggleik án forgjafar

1 sæti Einar Long GR á 70 höggum
2 sæti Andri Már Óskarsson GHR á 71 höggi
T-3  Rúnar Geir Gunnarsson NK og Henning Darri Þórðarson GK á 73 höggum.

Úrslit í höggleik með forgjöf

1 sæti Halldór Magni Þórðarson GM á 68 nettó.
2 sæti Jóhann Unnsteinsson GKG á 68 nettó.
3 sæti Jóhann Sigurðsson á GK á 69 nettó.

Í efstu sætum í punktakeppninni urðu eftirfarandi:

1 Halldór Magni Þórðarson GM(18 20) 38 punktar.
2 Jóhann Unnsteinsson GKG (18 20) 38 punktar.
3 Kristján Bjarni Halldórsson GSS (20 18) 38 punktar.

Nándarverðlaun:
2. braut Ólafur Straumland NK 2,98 m
4. braut Hafdís Alda Jóhannsdóttir GK 1,87 m
8. braut Andri Már Óskarsson GHR 2,10 m
11. braut Arngrímur Benjamínsson NK 2,11 m
13. braut Aðalsteinn Ingvarsson GV 1,25 m

Lengsta teighögg á 18 braut Andri Már Óskarsson GHR

Ljósmyndari Golf 1 var á staðnum og verða birtar nokkrar myndir úr mótinu hér síðar í kvöld.