Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 6. 2013 | 11:30

GK: Þórdís Geirs efst eftir 3 púttmót Keiliskvenna

Frá kvennanefnd Keilis barst eftirfarandi fréttatilkynning:

„Það var fín mæting á síðasta miðvikudag 43 konur og spilaðir 2 hringir. Besta skorið áttu Þórdís og Rannveig Hjaltad 30 högg, síðan voru Anna Snædís, Jóhanna Sveins, Dagbjört og Kolbrún á 32 höggum.

Eftir 3 mót eru þessar efstar í samanlögðu skori:

Þórdís Geirsdóttir       90 pútt

Helga Jóhannsdóttir 93 pútt

Anna Snædís               94 pútt

Rannveig Hjaltad.      95 pútt

Valgerður Bjarnad.     96 pútt

Kristín Fjóla                  98 pútt

Ragnheiður Ríkharðs 99 pútt

Lovísa Hermannsd.     99 pútt

Silja Rún                       101 pútt

Herdís Sigurjóns        101 pútt

 […]

Öskudagurinn er eftir rúma viku þ.e. 13. febrúar, þá væri mjög gaman að sem flestar mæti í búningum við höfum þá veglegri veitingar eftir mótið og við kjósum besta búninginn.

Hlökkum til að sjá ykkur í dag, miðvikudaginn (6. febrúar 2013) . Við spilum 18 /27 /36 eftir því hvað margar konur mæta!“