Ragna Björk Ólafsdóttir and Alfreð Brynjar Kristinsson, Club Champions of the Golf Club of Kópavogur and Garðabær 2013 (abbreviated: GKG)
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 14. 2013 | 16:00

GKG: Ragna Björk og Alfreð Brynjar klúbbmeistarar 2013

Alfreð Brynjar Kristinsson vann dramatískan sigur á Meistaramóti GKG. Hann og Aron Snær Júlíusson voru efstir og jafnir eftir fjóra hringi á samtals 293 höggum.

Aron Snær sýndi mikið harðfylgi eftir slæma byrjun á annarri holu og endaði á að  spilaði völlinn á tveim undir saxaði þannig á þriggja högga forystu Alfreðs Brynjars sem spilaði á einum yfir.

Bráðabana þurfti til að knýja fram úrslit og er skemmst frá því að segja að Alfreð Brynjar vann eftir fyrstu holu í bráðabana með fugli á meðan Aron Snær spilaði á hana á parinu.

(Hægt er að lesa lýsingu á bráðabananum með því að SMELLA HÉR:)

Ragna Björk var nokkuð örugg með sinn sigur, spilaði fjóra hringina á samtals 318 höggum og var Ingunn Gunnarsdóttir sjö höggum á eftir.

Hægt er að sjá úrslit í öðrum flokkum með því að SMELLA HÉR: