Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 12. 2024 | 12:00

GM: Björn Óskar með albatross!

Á Facebook síðu Golfklúbbs Mosfellsbæjar gefur að finna eftirfarandi frétt:

Hann Björn Óskar Guðjónsson gerði sér lítið fyrir á lokadegi í meistaramóti og skellti í Albatros á 5. braut á Hlíðavelli.
Við ætluðum að sjálfsögðu að vera löngu búin að segja frá því en stanslausar fréttir af holu í höggi hafa aðeins truflað það 🙂
Hér að neðan lýsir Björn Óskar þessu glæsilega höggi;
„Ég spilaði holuna svona: baby fade með drivernum sem endaði á braut þar sem ég átti 198 metra í stöngina. Það var smá gola með þannig að ég bað kylfisveininn (Elís) um 4 járnið. Ég vissi að boltinn skoppar oftast til vinstri á þessu gríni þannig að ég miðaði á hægri hliðina á greeninu og lét vaða. Ég hitti boltann vel og sá hann lenda fremst á gríninu og skoppa eitthvað áfram en af því að greenið er upphækkað þá sá ég boltann ekkert eftir það. Ég rétti Elís kylfuna og labba af stað og þá heyri ég fagnaðarlæti í Kristó, Sveppa og Hjalta á 6. teig. Þeir segja að boltinn hafi endað ofaní. Ég trúði því samt ekki fyrr en ég teygði mig eftir boltanum ofaní holunni.

Golf 1 óskar Birni Óskari til hamingju með albatrossinn!!! Glæsilegur!!!