Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 24. 2024 | 18:00

GM: Skúli með ás!

Skúli Guðmundsson, GM, gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 9. braut í Bakkakoti, þann 4. ágúst síðastliðinn.

Níunda brautin er par-3, 82 metrar frá teig að holu.

Skúli  notaði 9. járn og flaug boltinn beint á pinna, lenti rétt fyrir framan holu og rúllaði beinustu leið ofan í.

Fjöldi fólks, sem sat út á palli við golfskálann, varð vitni að draumahögginu og fagnaði ákaft.

Golf 1 óskar Skúla til hamingju með ásinn!