Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 26. 2012 | 20:30

Golfútbúnaður: Nýr draugur í TaylorMade draugafjölskyldunni

Draugafjölskyldu TaylorMade púttera  er að bætast nýr fjölskyldumeðlimur, Manta draugurinn, sem fer á markað í mars. Í millitíðinni má sjá marga af fremstu kylfingum heims nota hann á helstu mótaröðum heims.

Manta draugapútterinn er það nýjasta sem kynnt verður á PGA Merchandise show, sem byrjar í þessari viku.

TaylorMade hefir látið hafa eftirfarandi eftir sér: „Ný hönnun á Manta draugnum er mjög hrein og klassísk og hefir sannað sig á túrnum og saman með framúrstefnulegri og nútíma tækni, sem oft skilar sér í skrýtnum púttershöfuðum þá er hér  öllu blandað saman í heildstæðan pútter.”

Þar að auki: „Tveir 50 gramma þyngingaraukar og 1/3 breytilegar þyngdir í miðju að aftan á sólanum sjá fyrir háu MOI og stöðugleika.“

Þegar hlýtt er á þessar lýsingar þá hljómar það eins og Manta draugapútterinn sé hannaður fyrir kylfinga, sem leita eftir sömu eiginleikum árangurs og í köngulóar draugapútternum,, bara með hefðbundnara útliti.

Á Manta eru líka tvær nýjar viðmiðunarlínur sem vantar á köngulóar drauginn sem hjálpa til við að taka mið.

Í pútternum er líka  TaylorMade’s Pure Roll insert, sem er æltað að stuðla að mjúku, nákvæmu rúlli.

TaylorMade drauga Mantan verður til sölu í Bandaríkjunum á  $179 (eða á $199 fyrir magapútterútgáfuna). Pútterinn verður kominn í golfbúðir í Bandaríkjunum 23. mars n.k.