Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 27. 2012 | 19:00

Golf á Íslandi – jólagjöf kylfingsins í ár!!!

Út er komið glæsilegt ritverk: Golf á Íslandi, í tilefni 70 ára afmæli Golfsambands Íslands í ár. Fyrstu eintökin voru afhent á blaðamannafundi GSÍ í dag, en viðstaddir athöfnina voru m.a. höfundarnir Steinar J. Lúðvíksson og Gullveig Sæmundsdóttir, ásamt myndritstjóra verksins Frosta B. Eiðssyni.

Golf á Íslandi er 800 blaðsíðna og það prýða um 1000  myndir. Margir hafa komið við sögu í jafnviðamiklu verki sem Golf á Íslandi er og voru þeim afhent fyrstu eintökin. Þeirra á meðal eru: Friðþjófur Helgason, Gunnar Bragason, Helga Daníelsdóttir, Júlíus Rafnsson, Lucinda Grímsdóttir, Ólafur Bjarki Ragnarsson, Ragnar Ólafsson, Sveinn Snorrason og Úlfar Jónsson, landsliðsþjálfari.

Golf 1 var á staðnum og smellti af nokkrum myndum. Nánar verður fjallað um ritverkið stórbrotna hér á Golf 1 á næstu dögum:

Jón Ásgeir Eyjólfsson og Hörður Þorsteinsson. Mynd: Golf 1

Jón Ásgeir, forseti GSÍ afhendir Ólafi Rafnssyni, forseta ÍSÍ, fyrsta eintakið af Golf á Íslandi! Mynd: Golf 1.

Sveinn Snorrason ásamt Jóni Ásgeiri Eyjólfssyni. Mynd: Golf 1

Lucinda Grímsdóttir og Helgi Daníelsson voru meðal þeirra sem komu að ritverkinu Golf á Íslandi. Mynd: Golf 1

Þrjú góðs saman! Mynd: Golf 1

Úlfar Jónsson, landsliðsþjálfari, (lengst t.v.) var meðal þeirra sem hlutu fyrstu bækurnar af Golf á Íslandi. Mynd: Golf 1

Nokkrir sem komu að verkinu Golf á Íslandi og aðstoðuðu við öflun mynda, sem prýða bókina. F.v.: Edwin Rögnvaldsson, golfvallararkítekt, Páll Ketilsson, ritstjóri Kylfings, Friðþjófur Helgason og Viðar Þorsteinsson, en sá síðastnefndi lét m.a. frábæra mynd af klúbbhúsinu í Grafarholti meðan enn var verið að byggja það 1964. Lengst t.h. er Jón Ásgeir Eyjólfsson, forseti GSÍ.  Mynd: Golf 1