Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 23. 2012 | 08:00

Golf Iceland á stærstu golf-ferðaráðstefnu heims – International Golf Travel Mart

Í gær birti Golf 1 næstum ársgamla frétt (frá 29. nóvember 2011) af vef „Iðnaðarráðuneytisins“  sem nú heitir auðvitað Atvinnumála- og nýsköpunarráðuneytið;  „Ísland „leynd perla“ sem golfáfangastaður – fær örn á stærstu golf-ferðakaupstefnu í heimi!“ Það var upphitun fyrir frétt í dagsins í dag, en á vef ráðuneytisins var sagt frá ferðamálaráðstefnu í Tyrklandi 2011, þar sem Ísland var valið einn af 6 áhugaverðustu nýju golf-áfangastöðum heims.

Þessi tilnefning í fyrra og reyndar hittifyrra líka kom sér vel á International Golf Travel Mart ferðasýningunni, því hún hefir svo sannarlega vakið athygli á Íslandi sem golfáfangastað.

„Dagana 11.-16. nóvember 2012 var International Golf Travel Mart ferðasýningin haldin í Portúgal. Þessi sýning er haldin árlega og er stærsta sérhæfða golfferðasýning í heiminum.

Að þessu sinni tóku alls um 1000 aðilar þátt í henni, 600 aðilar, sem kynntu sína áfangastaði, heil lönd, ákveðin golfsvæði í heiminum eða einstaka golfvelli fyrir um 300 sérhæfðum söluaðilum golfferða og um 100 fjölmiðlamönnum sem sóttu sýninguna.

Samhliða sýningunni fer fram mikil kynning á golfi og ferðaþjónustu svo og alls konar tölfræði því tengd.

Golf Iceland var að þessu sinni með kynningarbás á sýningunni þar sem samtökin kynntu almennt möguleika til að spila golf hér á landi svo og sérstaklega þjónustu sinna meðlima.

Magnús Oddsson verkefnastjóri Golf Iceland sótti sýninguna og sá um kynninguna.
„ Við erum að sjálfsögðu ekki að kynna okkur þarna sem samkeppni við hina hefbundnu golfáfangastaði eins og Spán og Flórída. Okkar kynning er á þeim forsendum að það að spila golf á Íslandi sé einstök og „öðruvísi“ upplifun. Lögð er áhersla á möguleikana til að spila í okkar einstöku náttúru enda séu vellirnir hluti af henni svo ekki sé minnst á miðnæturgolfið,sem alltaf vekur mikla athygli“ segir Magnús.

Hann segir að fjölmörg viðtöl hafi átt sér stað við söluaðila á okkar helstu markaðssvæðum auk þess sem miklu efni hafi verið dreift til þeirra og fjölmiðlafólksins. Beinar bókanir nýrra aðila hafi verið gerðar og nú fari í hönd vinnan við að fylgja eftir þessari kynningu enn frekar gagnvart líklegum nýjum kaupendum golfferða til Íslands.

Einnig eru í tengslum við sýninguna veitt verðlaun í ýmsum flokkum sem snerta golf og ferðaþjónustu.

Ísland hefur tvö undanfarin ár verið tilnefnt ásamt fimm öðrum sem:
„ Áhugaverðasti nýi golfáfangastaðurinn í heiminum“ en um 160 fjölmiðlamenn taka þátt í valinu.

Magnús segir ljóst að þessar tilnefningar hafi mikil áhrif hvað varðar að vekja áhuga söluaðila á að kynna sér betur þennan áfangastað. Það hafi komið vel fram í viðtölum við þá.“