Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 14. 2011 | 10:30

Golfkúlur skornar út í listilegar jólakúlur

Þessi græna kúla væri flott á hvaða jólatré sem er, er það ekki?
Við fyrstu sýn gæti maður haldið að hún væri greypt í einhvers konar framandi stein eða kannski unnin í mjólkurgrænan jaði-stein.
En það er ekki einu sinni nálægt því. Þessi græna kúla er búin til úr innri kjarna golfbolta. Mintugræni liturinn (á kúlunni hér að ofan á myndinni) er sami litur og er á efni golfboltakjarnans, en hann er síðan skreyttur með gylltu, handmáluðu bandi.
Þeir sem hafa tréristu að áhugamáli hafa uppgötvað nýtt efni, sem eru innri kjarnar golfbolta, til þess að skera í allskyns falleg mynstur og endurnýta notaða golfbolta í jólakúlur. Þetta er iðja sem hlotið hefir nafnið „Golf Ball Carvings“ á ensku.
Sjá má mismunandi gerðir golfboltajólakúla á Sticks n´Stones og það er jafnvel búið að búa til facebook síðu fyrir þessa nýstárlegu gerð jólakúla: Golfboltar nýttir í jólakúlugerð Facebook
Enn ein sniðuga jólagjöfin fyrir þá sem eiga allt, eða hugmynd að skemmtilegri tómstundaiðju!
Heimild: Golf Girl´s Diary