Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 23. 2011 | 08:00

Golfvellir á Spáni: La Manga í Cartagena

Hér verður fram haldið að kynna þá 4 velli þar sem 2. stig úrtökumóts fyrir Evrópumótaröðina fer fram 2. – 5. desember n.k. Birgir Leifur Hafsteinsson, tekur sem kunnugt er þátt og valdi sér Costa Ballena völlinn að keppa á, en sá völlur var kynntur í gær í máli og myndum.

Púttflöt á La Manga

Á La Manga í Cartagena eru 3, 18-holu  golfvellir, suður-norður og vesturvöllurinn, sem allir eru afar ólíkir og einn par-47 æfingavöllur. Öll æfingaaðstaða og æfingasvæði eru til mikillar fyrirmyndar og hefir La Manga 3 sinnum verið sigurvegari í vali á besta golfstað Spánar. Robert D. Putnam hannaði norður (par-71) og suður-golfvöllinn (par-73), en að hönnun þess síðarnefnda (par-73) kom einnig Arnold Palmer. Dave Thomas hannaði hins vegar vesturvöllinn (par-72). Best er að skoða vellina á heimasíðu La Manga golfklúbbsins með því að smella HÉR: