Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 17. 2020 | 18:00

GR: Guðmundur Ágúst íþróttakarl Reykjavíkur 2020

Íþróttafólk Reykjavíkur 2020 var tilkynnt í dag með öðrum hætti en venjulega vegna aðstæðna í samfélaginu, Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR var valinn íþróttamaður ársins og íþróttakona ársins er Steinunn Björnsdóttir, handknattleikskona úr Fram.

Á árinu 2020 var Guðmundur Ágúst með keppnisrétt á næst sterkustu atvinnumótaröð Evrópu, Challenge Tour en aðeins fimm íslenskir kylfingar hafa öðlast keppnisrétt á Áskorendamótaröðinni. Guðmundur Ágúst endaði í 46. Sæti á stigalistanum sem er næst besti árangur hjá íslenskum atvinnukylfingi á Áskorendamótaröðinni (Challenge Tour). Besti árangur hans var á Norður-Írlandi þar sem Guðmundur Ágúst endaði í 5. sæti. Guðmundur Ágúst hefur farið hratt upp heimslistann á undanförnum misserum.

Sjá nánar í frétt á vef Íþróttabandalags Reykjavíkur

Golf 1 óskar Guðmundi Ágústi innilega til hamingju með titilinn Íþróttamaður Reykjavíkur 2020.