Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 7. 2012 | 15:30

GR: Jón Pétur áfram formaður Golfklúbbs Reykjavíkur

Jón Pétur Jónsson var endurkjörinn formaður Golfklúbbs Reykjavíkur á aðalfundi klúbbsins sem fram fór í  golfskálanum í Grafarholti miðvikudaginn 5. desember s.l.. Jón Pétur er að hefja sitt sjötta ár sem formaður Golfklúbbs Reykjavíkur. Nýkjörinn formaður vill koma á framfæri þökkum til félagsmanna með það traust sem honum var sýnt með endurkjöri. Helga Harðardóttur sem hefur verið gjaldkeri klúbbsins gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu og í hennar stað var kjörin Guðný Helga Guðmundsdóttir til eins árs. Aðrir stjórnarmeðlimir gáfu kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu.

Félagsmönnum var kynnt starfsárið sem var að líða. Hagnaður á rekstri klúbbsins á starfsárinu var um 7,2 milljónir króna, en til samanburðar var hagnaður síðasta árs rúmar 12 milljónir króna. Tekjur námu alls 346 millj. kr samanborið við 330 millj. kr á árinu 2011. Fjárhagsáætlun næsta árs gerir ráð fyrir tæplega 37 milljón króna hagnaði.

Sumarið 2012 verður lengi í hugum manna sem eitt það albesta bæði veðurfarslega sem og vegna vallaraðstæðna og kemur það fram í mjög miklum golfleik. Spilaðir hringir í Grafarholti voru 36.873 á móti 32.488 árið á undan eða um 13% aukning. Korpúlfsstaðavöllur opnaði 21. apríl og þar voru leiknir 37.998 hringir á móti 35.071 árið á undan sem er um 8% aukning.

Aðalfundurinn samþykkti gjaldskrá félaga fyrir næsta ár, að tillögu stjórnar.

Félagsmenn 21 – 66 ára verður 85.000 kr. eða 4% hækkun.
Félagsmenn 67 ára og eldri verður 50.000 kr eða 11% hækkun.
Félagsmenn 18 – 20 ára verður 41.000 kr. eða 4% hækkun.
Félagsmenn 11 – 17 ára verður 28.000 kr. eða 4% hækkun.
Félagsmenn 10 ára og yngri verður 14.500 kr eða 4% hækkun.

Til þess að skoða skýrslu formanns  SMELLIÐ HÉR: og ársreikning GR SMELLIÐ HÉR:

Heimild: grgolf.is