Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 27. 2011 | 10:00

Greg Chalmers stóð uppi sem sigurvegari Australian PGA Championship

Það var sigurvegari s.l. helgi á Australian Open, í The Lakes í Sydney, Ástralinn Greg Chalmers, sem sigraði á Australian PGA Championship á Hyatt Regency golfstaðnum, í Coolum, í Ástralíu í nótt.

Greg Chalmers lauk lokahringnum í nótt á -5 undir pari, þ.e. 67 höggum og voru hann ásamt Robert Allenby (68) og Marcus Fraser (69) á samtals -12 undir pari þ.e. samtals 276 höggum að liðnum venjulegum leiktíma. Því þurfti að koma til umspils.

Þar vann Chalmers landa sína, Allenby og  Fraser á 1. holu með pari, eftir að þeir tveir síðarnefndu lentu í vandræðum með teighögg sín.

„Það kom mér á óvart að par skyldi duga til að sigra, en svona er þetta stundum í umspili,“ sagði Chalmers þegar sigur hans lá fyrir.

Hinn örvhenti Chalmers hefir stórt tækifæri á að taka áströlsku „þrennuna“ (ens.: Australian Triple Crown) þ.e. sigri hann á Australian Masters í Melbourne í næsta mánuði.

Jafnir í 4. sæti (þ.e. T-4) voru Ástralarnir Adam Scott (68) og Aaron Baddeley (72) á samtals -10 undir pari, hvor.

Adam Scott sagðist hafa „farið illa með tækifærin í vikunni.“… „en mér finnst eins og seinni part ársins hafi ég verið að gera rétta hluti, þetta er nokkuð sem verður að vinna í fyrir næsta ár. Mér finnst ég vera að knýja að dyrum.“

Bandaríkjamaðurinn Bubba Watson hrundi niður skortöfluna með skor upp á 77 högg og deildi 12. sætinu með öðrum á samtals -7 undir pari.

Til þess að sjá úrslitin á Australian PGA Championship smellið HÉR: