Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 7. 2019 | 07:00

GS: Eysteinn m/ás!!!

Hann Eysteinn Marvinsson sló draumahöggið á 1. degi meistaramóts GS, sem lauk í gær.

Draumhöggið sló Eysteinn í Bergvíkinni, par-3, 3. brautinni í Leirunni.

Eysteinn, lauk keppni í 7. sæti í  4. flokki karla á meistaramótinu.

Vitni að ásnum og með Eysteini í holli voru þeir Ólafur Birgisson, Jóhann Páll Kristbjörnsson og Snæbjörn Guðni Valtýsson.

Golf 1 óskar Eysteini innilega til hamingju með ásinn!!!