Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 17. 2020 | 18:00

Guðrún Brá með glæsilegt vallarmet!

Nú um helgina fór fram ÍSAM mótið á Heimslistamótaröðinni í golfi.

Allir bestu kylfingar landsins mættu til leiks og var spilað frábært golf í blíðunni í gær.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Golfklúbbnum Keili spilaði stórkostlegt golf á fyrri 18 holunum í gær og setti nýtt vallarmet af bláum teigum þegar hún lék á 68 höggum.

Vallarmetið hafði staðið óhreyft frá því að Nína Geirsdóttir setti það árið 2015.

Golf 1 óskar Guðrúnu Brá til hamingju með nýja vallarmetið!