Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 26. 2024 | 15:33

GVS: Klúbbmeistarinn fór holu í höggi

Klúbbmeistari GVS 2024 (og mörg ár þar á undan), Helgi Runólfsson, fór holu í höggi á 3. braut í annari umferð Íslandsmóts golfklúbba á Kálfatjarnarvelli, þann 16. ágúst sl.

Þriðja braut á Kálfatjarnarvelli er par-3, 100 metra af gulum teigum.

Helgi var ekki hættur og rétt missti Albatros á 6. brautinni.

Þar fékk hann örn.

Golf 1 óskar Helga til hamingju með draumahöggið!