Ragnheiður Jónsdóttir | október. 24. 2012 | 22:00

Dýr á golfvöllum: Hákarl á 12. teig á golfvelli í Kaliforníu

Kylfingar og starfsmenn á golfvelli í Kaliforníu urðu heldur betur hissa þegar þeir fundu lifandi hákarl sprikla um á 12. teig vallarins.

Ekkert vatn eða sjór er þarna nálægt og veit enginn hvernig 60 cm litli hákarlinn komst á San Juan Hills golfvöllinn í San Juan Capistrano, Kaliforníu.

„Eftirlitsmennirnir okkar voru á hringnum sínum þegar þeir fundu hákarlinn spriklandi á teig,“ sagði Melissa McCormack, framkvæmdastjóri klúbbsins. „Hann spriklaði bara. Hreinskilnislega sagt er þetta það skrýtnasta sem komið hefir fyrir hér.“

Eftirlitsmaðurinn tók hákarlinn í bíl sinn og keyrði með hann í klúbbhúsið. Þar var honum komið fyrir í fötu með saltvatni í. Eftirlitsmaðurinn Bryan Stitzer keyrði síðan með hákarlinn í kaffipásu sinni á Baby Beach í Dana Point til að sleppa honum í sjóinn.

„Ég hélt að hann væri dauður. Þegar ég sleppti honum í sjóinn lá hann bara þar í nokkrar sekúndur, en síðan snerist hann og skaust í vatnið.“

Hákarlar geta ekki flogið þannig að McCormack telur að fugl, líklega fálki, hafi lesið hann úr grunnum sjónum, flogið yfir golfvöllinn og sleppt honum þar.  Hann var svolítið blóðugur á bakuggunum og með sár á þeim.

„Það var svolítið blóð á honum, en hann var enn á lífi. Við vorum ekkert að tvínóna. Auminginn litli að hafa fallið svona á golfvöllinn.“

Julianne Steers, í sjávarstofnuninni í Dana Point telur að um hlébarðahákarl hafi verið að ræða sem er algengur í Kaliforníu. Þetta er líklega einn af fáum hlébarðahákörlum sem komið hefir á golfvöll!!!

Heimild: Travelers Today