Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 27. 2021 | 07:12

Harry Kane spilaði golf nú nýverið

Nú nýverið sást til enska knattspyrnumannsins, Harry Kane, þar sem hann spilaði golf ásamt félögum sínum á Queenwood vellinum glæsilega í Surrey.

Kane, 28 ára var að leik með Spurs félögum sínum þeim Matt Doherty and Eric Dier og fyrrum Spursaranum Jamie Redknapp, sem nú starfar sem fréttaskýrandi á Sky Sports Football.

Með í för var einnig ástralska krikett goðsögnin Shane Warne.

Þrátt fyrir ansi þétta byrjun Tottenham í úrvalsdeildinni; með 1-0 sigur bæði gegn Manchester City og Úlfunum, þá hefir Kane aðeins spilað tæpar 20 mínútum af fótbolta, þ.e. þegar hann kom inn á 72. mínútu í leiknum gegn Wolves.

Kane var sagður vera í viðræðum við Manchester City þegar flutningagluggi hans opnaðist nú í ágúst.

Félagi hans, enska krikett goðsögnin og Chelseaáhangandinn Kevin Pietersen reyndi að fá Kane af þessu rugli að semja við Manchester. Pietersen tvítaði m.a.: „Why would @HKane even contemplate going up to Manchester, when he has access to Wentworth, Beaverbrook, Sunningdale, Queenwood.
Not ONE good golf course in or around Manchester! „

(Lausleg þýðing: Af hverju ætti @HKane bara að íhuga að fara upp til Manchester þegar hann hefir aðgang að Wentworth, Beaverbrook, Sunningdale og Queenwood. Það er ekki EINN góður golfvöllur í eða í kringum Manchester!“

Jæja, skyldi þetta þá skipta máli fyrir knattspyrnumenn, þegar þeir semja um félagaskipti hvar bestu golfvellirnir eru?