Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 16. 2020 | 21:00

Heimslistamótaröðin (1): Guðrún Brá og Dagbjartur leiða e. 1. dag ÍSAM-mótsins

Það eru þau Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK og Dagbjartur Sigurbrandsson, GR, sem eru í forystu eftir 1. dag ÍSAM mótsins.

Dagbjartur Sigurbrandsson, GR, á 1. degi ÍSAM mótsins á Hlíðavelli 16. maí 2020. Mynd: GSÍ

 

Spilaðar voru 36 holur á Hlíðarvelli í Golfklúbbi Mosfellsbæjar á fyrri degi mótsins en á morgun, sunnudaginn 17. maí verða spilaðar 18 holur.

Guðrún Brá var eini kvenkeppandinn, sem var með heildarskor undir pari, en 7 efstu karlkylfingarnir spiluðu auk þess allir undir pari.

Athyglisvert er hversu vel áhugakylfingarnir eru að standa sig á þessum fyrsta mótsdegi.

Mótið gefur stig á heimslistann.

Staðan eftir 1. dag er eftirfarandi:

Í kvennaflokki:

1 Guðrún Brá Björgvinsdóttir,  Golfklúbburinn Keilir, -2, 142 högg (68 74)

2 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Golfklúbbur Reykjavíkur, Par, 144 högg (72 72)

3 Ragnhildur Kristinsdóttir (áhugamaður), +3, 147 högg (74 73)

4 Valdís Þóra Jónsdóttir,  Golfklúbburinn Leynir, +8, 152 högg (73 79)

5 Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, (áhugamaður), Golfklúbbur Reykjavíkur, +15, 159 högg (76 83).

Í 6. sæti er Berglind Björnsdóttir, GR; í 7. sætinu Arna Rún Kristjánsdóttir, GM; í 8. sætinu Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR og í 9. sætinu María Björk Pálsdóttir, GKG.

Í karlaflokki: 

1 Dagbjartur Sigurbrandsson (áhugamaður), Golfklúbbur Reykjavíkur, -6, 138 högg (70 68)

2 Björn Óskar Guðjónsson (áhugamaður), Golfklúbbur Mosfellsbæjar, -4, 140 högg (71 69)

T-3 Kristófer Orri Þórðarson (áhugamaður), Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar, -2, 142 högg (72 70)

T-3 Axel Bóasson, Golfklúbburinn Keilir, -2, 142 högg (70 72)

T-3 Andri Þór Björnsson, Golfklúbbur Reykjavíkur, -2, 142 lhögg (70 72)

T-3 Ólafur Björn Loftsson, Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar, -2, 142 högg (68 74)

7 Tóams Eiríksson Hjaltested (áhugamaður), Golfklúbbur Reykjavíkur, -1, 143 högg (71 72).

Í aðalmyndaglugga: Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK. Mynd: GSÍ