Korpan með SÁL = Sjóinn – Ánna – Landið. Mynd: Golf1
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 29. 2024 | 17:00

Hjördís fór holu í höggi!

Hjördís Björnsdóttir, GR, tók þátt í 8. móti Sumarmótaraðar Garmin og GR kvenna, þann 12. ágúst 2024.

Hjördís Björnsdóttir, GR, þegar hún fór holu í höggi á 13. braut Korpu (Sjórinn/Áin), þann 12. ágúst 2024. Mynd: Í einkaeigu

Um 68 kvenkylfingar kepptu og var keppnisfyrirkomulagið punktakeppni.

Hjördís fór holu í höggi á 13. braut á Korpu, leggnum Sjórinn/Áin.

Þrettánda braut er par-3 braut, 105 metra af rauðum teigum.

Golf 1 óskar Hjördísi innilega til hamingju með draumahöggið og inngönguna í Einherjaklúbbinn!

Í aðalmyndaglugga: Hjördís Björnsdóttir, GR. Mynd: Í einkaeigu