Ragnheiður Jónsdóttir | október. 15. 2011 | 07:00

Hver er kylfingurinn Billy Horschel?

Nýliðinn Billy Horschel hefir nú tekið forystuna á McGladreys Classic mótinu á PGA mótaröðinni, þegar mótið er hálfnað. Þetta mót fær heilmikla athygli vegna þess að Webb Simpson spilar á því – en með góðu gengi þar kemst Webb upp fyrir Luke Donald á peningalista PGA…. en aðeins í skamman tíma því Luke hefir tilkynnt að hann ætli ekki að láta færið að koma sér í sögubækurnar ganga sér úr greipum baráttulaust. Luke keppir nefnilega að því að verða fyrstur kylfinga til að vera efstur á peninaglistum bæði PGA og Evrópumótaraðarinnar á sama keppnistímabilinu.  Hann hafði ekki ætlað sér að taka þátt í lokamóti PGA, í Disney í næstu viku en hefir nú tilkynnt þátttöku til þess að freista þess að ná sögulegu markmiði sínu. Eiginlega verður hann því með góðu gengi á McGladreys skýst Simpson upp fyrir hann á peningalistanum.

Billy Horschel

En sem stendur er Webb Simpson er 2 höggum á eftir Horschel á McGladreys mótinu, þegar mótið er hálfnað.

Hver er kylfingurinn Billy Horschel?

Það fyndna er að með því að vera í 1. sæti á McGladreys hjálpar Billy Horschel – Luke Donald – en báðir eiga sama afmælisdag 7. desember. Að vísu er Billy aðeins yngri…hann fæddist 7. desember 1986, í Grant, Flórída … en Luke er 9 árum eldri fæddur 1977.

Billy spilaði í háskólagolfinu bandaríska með liði University of Florida. Hann var  …. a four-time All-American, og hlaut þrívegis first-team honors og var SEC leikmaður ársins árin 2007 og 2009. Hann var einnig PING southeast all-region selection, árið 2008.

Horschel vann einstaklingskeppnina á US Amateur árið 2006, en skor hans eftir 2 daga var upp á 138 högg (60-78) í Hazeltine National Golf Club í Chaska, Minnesota. Fyrri hringur hans upp á 60 högg var 18 holu og USGA met. Hann náði hins vegar ekki að komast gegnum 3 hringinn í holukeppni.

Horschel var í liði Bandaríkjanna í  Palmer Cup árin 2007 og 2008 og vann 4.5 stig fyrir liðið. Frammistaða hans í sigursælu liði Bandaríkjamanna í Walker Cup var 3-1 árið 2007.

Horschel gerðist atvinnumaður í golfi 2009.

Í desember 2009 fékk hann kortið sitt á PGA túrnum keppnistímabilið 2010 gegnum Q-school. Úlnliðsmeiðsl það keppnistímabil hindruðu Horschel í að taka þátt í fleiri mótum en 4 og í engu mótanna, sem hann tók þátt í komst hann í gegnum niðurskurð og því varð hann að endurtaka leikinn og fara aftur í Q-school í desember 2010 og rétt slapp inn í 28. sæti.

Í febrúar 2011, náði hann niðurskurði á Mayakoba Golf Classic, í fyrsta skipti eftir að hafa tekið þátt í 11 mótum á PGA og lauk keppni T-13. Nú er Billy í 139. sæti á peningalistanum og markmið hans með góðu gengi á McGladreys er að ná 125. sætinu og þar með halda korti sínu á PGA.

Hér fara að lokum nokkrir fróðleikmolar um Billy:

Stærsta stund Billy í golfi til þessa að var að spila með og sigra í Walker Cup lið Bandaríkjanna 2007.

Stærsta stundin utan golfs var útskriftin frá University of Florida árið 2009.

Uppáhaldsgolfvöllurinn er Royal County Down á Norður-Írlandi. Billy ferðast aldrei án tölvu sinnar.

Uppáhaldsíþróttaliðin eru New England Patriots, Boston Red Sox og Boston Celtics.

Billy er hjátrúarfullur hann er alltaf með 4 tí og 25 centa pening frá 1936 í hægri vasa sínum.

Uppáhaldssjónvarpsþátturinn er „SportsCenter.“ Uppáhaldskvikmyndir: „The Patriot“ and „The Hangover.“ Uppáhaldsskemmtikraftur er Kings of Leon. Uppáhaldsmatur er steik. Uppáhaldsíþróttamaður að horfa á er Tiger Woods. Uppáhaldsborgin er Monterey, í Kaliforníu.

Í draumaholli hans mynd vera félagar úr The Old Red Eye Rugby Group.

Hefir lesið allar Twilight bækurnar á 2 vikum og trúir á Bigfoot og geimskip.

Meðal þess sem Horschel hefir gert utan golfs er að starfa með pabba sínum í byggingarvinnu.

Heimild: Wikipedia – Hluti þessarar þýðingar greinarhöfundar hefir áður birst á iGolf vorið 2011 undir heitinu „Nýju strákarnir á PGA – nr. 28 – Billy Horschel”