Hver er kylfingurinn: Lloyd Mangrum?
Lloyd Eugene Mangrum ( f. 1. ágúst 1914 – d. 17. nóvember 1973) var bandarískur atvinnukylfingur. Hann var þekktur fyrir mjúka sveiflu sína og afslappaða hegðun sína á golfvellinum, sem varð til þess að hann fékk viðurnefnið „Mr. Icicle“
Mangrum fæddist í Trenton, Texas. Hann gerðist atvinnukylfingur 15 ára og van sem aðstoðarmaður bróður síns, Ray, sem var yfirkennari í Cliff-Dale Country Club í Dallas. Mangrum gerðist atvinnumaður 1929 og komst á PGA Tour 1937 þar sem hann vann 36 af 42 mótum sínum, sem atvinnumaður. Hann myndi eflaust hafa sigrað á fleiri mótum ef 2. heimstyrjöldin hefði ekki komið á milli, sem þýddi 7 ára hlé á golfleik. Fyrir stríð var Mangrum boðin staða golfkennara á golfvelli bandaríska hersins á Fort Meade, sem myndi hafa hlíft honum við að gegna herþjónust en Mangrum hafnaði. Hann hlaut tvö Purple Hearts og slasaðist við Battle of the Bulge. Bestu ár hans á Mótaröðinni komu eftir stríð. Hann var í forystu á peningalista PGA Tour 1951 og vann Vardon Trophy fyrir lægsta meðaltalsskor 1951 og 1953.
Lloyd Mangrum vann aðeins á 1 risamóti en það var Opna bandaríska árið eftir stríð, 1946, en hann varð jafnframt í 2. sæti í 4 risamótum og í 3. sæti í 5 skipti. Hann tapaði í bráðabana 1940 og 1950 á Opna bandaríksa. Hann varð meðal 10 efstu á Masters 10 ár í röð. Árið 1940 var hann á besta skori sem þar til hafði náðst á Masters, 64 högg og það met stóð þar til Nick Price kom inn á skori upp á 63 hgg árið 1986.
Mangrum spilaði í lið Bandaríkjanna í Ryder Cup in 1947, 1949, 1951 and 1953. Í síðustu keppninni sem hann tók þátt í var hann spilandi fyrirliði. Árangur hans í Ryder Cup var 6 sigrar og 2 töp þ.á.m. voru 3 sigrar og 1 tap í tvímenningshluta keppninnar.
Mangrum dó í Apple Valley, Kaliforniu árið 1973 úr hjartaáfalli. Þetta var 12. áfallið sem hann fékk. Mangrum var nefndur „gleymdi maðurinn í golfinu“ af íþróttafréttamanninum Jim Murray. Jafnvel þó aðeins 11 kylfingar hafi sigrað fleiri mót á PGA Tour hefir orðspor hans verið í skugganum af öðrum samtímastjörnukylfingum mangrum, sem lifðu lengur t.a.m. Sam Snead, Ben Hogan, Jimmy Demaret og Byron Nelson.
Í Masters 1996 gerði Nelson könnun. „Ég spurði 3 unga atvinnukylfinga hvort þeir hefðu heyrt um Lloyd Mangrum og enginn þeirra hafði gert það.“ Nelson sagði í kjölfarið „Lloyd er besti gleymdi kylfingurinn síðan ég byrjaði að spila golf.“
Árið 1998 var Mangrum tekinn í frægðarhöll kylfinga.
Heimild: Wikipedia
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024