Ragnheiður Jónsdóttir | október. 5. 2011 | 16:00

Hver er kylfingurinn Michael Hoey?

Hoey sigraði á Alfred Dunhill mótinu á Skotlandi nú s.l. helgi og vann sér inn tæpar 100 milljónir íslenskra króna fyrir vikið. En hver er þessi 32 ára kylfingur?

Michael George Hoey fæddist 13. febrúar 1979 í Ballymoney, en spilaði mikið golf í Shandon Park Golf Club í austur Belfast. Hann sigraði British Amateur Championship árið 2001 og var í sigurliði Breta&Íra í Walker Cup árið 2001. Honum bauðst sem áhugamanni að spila á US Masters 2002, þar sem hann var 1 höggi frá því að komast í gegnum niðurskurð.

Fram til ársins 2009 átti Hoey í vandræðum með að halda sér á Evróputúrnum og spilaði mestmegnis á Áskorendamótaröðinni þar sem hann sigraði 3 sinnum þ.e. á: BA-CA Golf Open, árið 2005, Tessali-Metaponto Open di Puglia e Basilicata, árið 2007 og Banque Populaire Moroccan Classic, árið 2008.  Hann varð í 8. sæti á 2005 listanum yfir bestu kylfinga Áskorendamótaraðarinnar, sem gaf honum sjálfkrafa rétt til þátttöku á Evrópumótaröðinni.

Hann átti í miklum erfiðleikum árið 2006 og sneri aftur á Áskorendamótaröðina 2007.  Hann fékk aftur þátttökurétt á Evrópumótaröðinni 2009 eftir að hafa farið í gegnum Q-school.  Snemma árs 2009 fór aðeins að grilla í velgengni þegar hann náði 2. sæti á eftir Retief Goosen í Africa Open á Sólskinstúrnum. Í apríl sama ár vann hann í fyrsta skiptið á túrnum þ.e. Estoril Open de Portugal , þar sem hann hafði betur gegn Gonzalo Fernández-Castaño á 3. holu umspils. Með sigrinum vann hann sér inn 1 árs undanþágu til keppni á Evróputúrnum.  Hann er búinn að sigra tvívegis í ár þ.á.m. eins og sagði í upphafi Alfred Dunhill Links Championship, sem er stærsti sigur hans hingað til.

Loks mætti geta að hann keppti fyrir Írland ásamt Gareth Maybin í Omega Mission Hill heimsbikarnum 2007, en þeir urðu í 24. sæti.

Að lokum eins og Golf 1 greindi frá fær Hoey að taka þátt á lokamóti Evrópumótaraðarinnar í Dubai á þessu ári þar sem keppt er um u.þ.b. 840 milljónir íslenskra króna.